Vetrarhátíð
Vetrarhátíð Sjálfsbjargarheimilisins fimmtudaginn 4. mars 2010 í Matsalnum frá kl. 17.00 til 21.00.
Dagskrá:
Fordrykkur
Borðhald hefst 17.30 og á matseðlinum eru:
Fjölbreyttir austurlenskir réttir
Kaffi og sætir smáréttir
Skemmtiatriði:
Hreimur Örn Heimisson mætir á svæðið og syngur
Harmoniku- og trommuleikarar spila svo hægt er að fá sér snúning
Söngur- við syngjum saman á milli atriða
Happdrætti- lukkunúmerin dregin út og fullt er af góðum vinningum
Kynnir kvöldsins verður Þórunn Kristjánsdóttir
Umsjónarmenn eru Pálína og Ingibjörg
Starfsmenn vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Garðars, Ingibjargar eða Pálínu svo hægt sé að áætla fjöldann./EJ
Á fundi 7 manna nefndar var rætt um Vetrarhátíðina
Hátíðin var fimmtudaginn 4. mars og hófst stundvíslega kl. 17. 00 með fordrykk. Fundarmenn byrjuðu á að horfa á nokkrar myndir af vetrarhátíðinni, greinilega kom fram að allir mættu í hátíðaskapi og spariklæddir.
Allir voru sammála um að kvöldið hefði verið frábært og var öllu hrósað. Fordrykkurinn sérlega ljúffengur, austurlenski pinnamaturinn mjög góður og mikil tilbreyting, eftirréttirnir girnilegir og góðir. Salurinn vel skreyttur og litríkur. Happdrættisvinningarnir voru margir og góðir. Ingu var sérlega þakkað fyrir alla vinningana sem hún útvegaði sem og öðrum sem útveguðu vinninga. Hreimur Örn Heimisson söng og vakti mikla hrifningu með bítlalögum og fleiru.
Þórunni Kristjánsdóttur fórst stjórnun hátíðarinnar vel úr hendi sem og Pálínu og Ingibjörgu með allan undirbúnig og umsjá kvöldsins.
Fundarmenn samþykktu að stefna að svipaðri vetrarhátíð að ári.
