Starfsmannaferð og árshátíð
Stykkishólmi
Vorferð starfsmanna og árshátíð var haldin í Stykkishólmi 24 - 25. apríl 2010. Mikil og góð þátttaka var í ferðinni. Við lögðum af stað með nýrri og góðri rútu frá Hátúni 12 kl. 10,30 með betri föt í tösku, í góðum skóm og vel útbúin.
Ekið sem leið lá í Stykkishólm og stoppuðum við bjórverksmiðjuna Mjöð. Áður en við skoðuðum verksmiðjuna drógu starfsmenn eldhússins upp nesti af bestu gerð, heita súpu, samlokur og grilluð kjúklingalæri.
Svo var verksmiðjan skoðun og kynnt með góðum fyrirlestri um starfsemnina og kennslu í bruggi. Áður höfðum við smakkað framleiðsluna sem rann ljúflega niður.
Næst var farið í siglingu um Breiðafjörðinn og sigldum milli eyja og skerja. Heiðskírt og yndislegt veður, útsýnið fráfært og mikið fuglalíf. Fundum samt ekki örninn sem við leituðum að.
Eftir siglinguna fórum við á Hótel Stykkishólm og hvíldum okkur og undibjuggum veisluna. Þríréttuð máltíð og dans á eftir sem tókst vel.
Sunnudagsmorgni eyddi hver að sinni vild margir gengu um þennan fallega bæ og fóru meðal annars á Vatnasafnið. Það er einstök upplifun að sjá það og verður varla lýst. Fegurðin var ólýsanleg í bænum, sjórinn spegilsléttur, logn og sól. Hvað er hægt að hugsa sér betra.
Klukkan eitt var lagt af stað í bæinn og komu allir ánægðir og glaðir til baka.
