Endurhæfingaríbúð

Endurhæfingaríbúð

Markmið: Að einstaklingurinn geti lifað sjálfstæðara og innihaldsríkara lífi við lok þjálfunar.

Þjónusta: Þjálfunin felst í því að takast á við það að búa sjálfstætt. Í því felst m.a. að einstaklingurinn þekki getu sína til athafna daglegs lífs. Lögð er áhersla á að styrkja félagsleg tengsl. Metin er þörf íbúans fyrir hjálpartæki og annan stuðning. Gerður er samningur við upphaf þjálfunar og er tímalengdin í byrjun yfirleitt áætluðþrír mánuðir en endurmetin reglulega og framlengdef þörf er á (meðaltímiþjálfunar er um 8 mánuðir).

Kostnaður: Viðkomandi leigir endurhæfingaríbúðina tímabundið af Sjálfsbjörg landsambandi fatlaðra og er hún á 5. hæð í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, 105 Reykjavík. Einnig getur fallið til kostnaður vegna heimaþjónustu og heimahjúkrunar.

Starfsmenn: Félagsráðgjafi, hjúkrunarforstjóri og iðjuþjálfi Sjálfsbjargarheimilisins skipa fagteymi sem skipuleggur og/eða sér um stuðning og þjálfun.

Önnur þjónusta í boði í Sjálfsbjargarhúsinu: Sjúkraþjálfun í Stjá og aðgangur að sundlaug Sjálfsbjargarheimilisins. Íbúinn getur keypt hádegisverð í mötuneyti Sjálfsbjargarheimilisins.

Umsóknir og upplýsingar: Umsóknir skulu berast á sérstöku eyðublöðum sem unnt er að nálgast á heimasíðu Sjálfsbjargarheimilisins. Læknisvottorð þarf að fylgja umsókninni. Hægt er að nálgast eyðublöðin á vefslóðinni: www.sbh.is/eydublod. Upplýsingar um endurhæfingaríbúðina veitir Erla Jónsdóttir félagsráðgjafi í síma 5500314, netfang: erla@sbh.is.

Því miður er ekki ennþá hægt að nálgast eyðublöð hér á síðunni, en þau er hægt að fá send í póst.

Senda grein





Leita á vefnum



Stoðflokkar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica