Sundlaug

Sundlaug

Markmið: Viðhalda og efla færni notenda þjónustunnar.

Þjónusta: Er ætluð fólki sem er hreyfihamlað og þarf á endurhæfingu, hæfingu eða afþreyingu að halda og getur ekki nýtt sér almenningssundlaugar. Sundlaugin er innilaug og aðgengileg. Laugin er 16,67 m á lengd. Tveir heitir pottar er við laugina. Hún er leigð ákveðnum hópum og er þá ekki opin almenningi.

Opnunartími: Nánar skilgreindur hér fyrir neðan.

Kostnaður: Notendur greiða ekki gjald. Rekstur sundlaugarinnar er fjármagnaður með framlagi á fjárlögum og sérstöku framlagi frá Reykjavíkurborg.

Starfsmenn: Tveir starfsmenn starfa við laugina. Meginverkefni þeirra lýtur að öryggisvörslu við sundlaugina. Þeir aðstoða sundlaugargesti í opnum tímum eftir aðstæðum hverju sinni. Þeir sem þurfa mikla aðstoð þurfa að koma með sinn aðstoðarmann.

Umsóknir og upplýsingar: Nánari upplýsingar veita sundlaugarstarfsmenn í síma 5500315. Upplýsingar um rekstur sundlaugarinnar veitir Þórdís Richter skrifstofustjóri í síma 5500311, netfang: richter@sbh.is.



Opnir tímar í sundlauginni eru:

Tímabilið frá 1. september 2011

 Mánudaga Þriðjudaga   Miðvikudaga Fimmtudaga  Föstudaga 
 8 - 15  8 - 13  8 - 10  8 - 10  8 - 13
   15 - 16  12 - 15  12 - 13  
       15 - 16  

Sundlaugargestir skulu hafa yfirgefið búningsklefa

15 mínútum eftir lokun.


Búningsklefarnir eru lokaðir á eftirfarandi tímum.

Mánudaga   Þriðjudaga 
 Miðvikudaga Fimmtudaga  Föstudaga
 eftir kl. 15  13 - 15 10 - 12 10 - 12  eftir kl. 13
   eftir kl 16  eftir kl 15 13 - 15  
       eftir kl 16  

Almenningi er óheimill aðgangur að búningsklefum á ofangreindum tíma.

 

 

    

 


Senda grein





Leita á vefnum



Stoðflokkar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica