Dagþjónusta
Markmið: Viðhalda og efla færni notenda þjónustunnar við athafnir daglegs lífs. Styðja þá til að halda heimili og til samfélagsþátttöku á eigin forsendum.
Áherslur: Til að viðhalda heilsunni er hverjum manni nauðsynlegt að stunda iðju sem skiptir hann máli.
Þjónusta: Þjónustan er einstaklingsmiðuð og veitt þar sem hennar er þörf, í þjónustumiðstöðinni og úti í samfélaginu, þar á meðal á heimili viðkomandi. Þjónustan er ætluð fólki sem hefur hreyfihömlun og þarf á endurhæfingu, hæfingu eða afþreyingu að halda. Aldursmörk eru 18 til 67 ára. Veitt er einstaklings- og hópþjálfun, fræðsla, ráðgjöf og tómstundaiðja er í boði.
Opnunartími: Opið alla virka daga frá 8:30 til 16:00. Lokað er allt að fjórum vikum að sumarlagi.
Matur: Í boði er morgunmatur, hádegismatur og síðdegiskaffi.
Kostnaður: Gjald fyrir hvern dag er 600 krónur og er fæði innifalið í gjaldi.
Starfsmenn: Fjórir iðjuþjálfar og fjórir sérhæfðir aðstoðarmenn.
Forföll: Notendur þjónustunnar eru beðnir að tilkynna forföll í síma 5500317.
Önnur þjónusta í boði í Sjálfsbjargarhúsinu: Sjúkraþjálfun í Stjá og sundlaug Sjálfsbjargarheimilisins.
Umsóknir og upplýsingar: Umsóknir skulu berast á sérstökum eyðublöðum sem unnt er að nálgast á heimasíðu Sjálfsbjargarheimilisins. Læknisvottorð þarf að fylgja umsókninni. Hægt er að nálgast eyðublöðin á vefslóðinni: www.sbh.is/eydublod. Upplýsingar um dagþjónustuna veitir Valerie J. Harris yfiriðjuþjálfi í síma 5500309, netfang: valerie@sbh.is
Því miður er ekki hægt að nálgast eyðublöð á síðunni en þau er hægt að fá send í pósti.
